2000 mót Taflfélags Reykjavíkur hefjast í dag. Skráningu lýkur klukkan 16!



Teflt er í tveimur flokkum, U2000 og Y2000 

Undir 2000 mótið 

Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig, þ.e. allt frá 0 að 1999 skákstigum. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Einnig bætast við 15 mínútur á klukkuna eftir 40 leiki. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Teflt er einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Sigurvegarar fyrri ára

Dagskrá
1. umferð: 18. október kl. 18.30
2. umferð: 25. október kl. 18.30
3. umferð: 1. nóvember kl. 18.30
4. umferð: 8. nóvember kl.18.30
5. umferð: 15. nóvember kl. 18.30
6. umferð: 22. nóvember kl. 18.30
7. umferð: 29. nóvember kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki.

Verðlaun: 1. sæti kr. 35.000, 2. sæti kr. 25.000, 3. sæti kr. 10.000. Hort-kerfi gildir.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 6.000, kr. 4.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 3.000, frítt fyrir félagsmenn í TR.

Skákstjórn: Jon Olav Fivelstad verður aðaldómari. 

Fyrirspurnir: taflfelag@taflfelag.is

Birnukaffi verður opið!

Yfir 2000 mótið 

Nákvæmlega sama fyrirkomulag nema fyrir skákmenn með 2000 stig og meira: Sama dagsrká, sömu tímamörk, sömu verðlaun, sömu mótsstig og sömu þátttökugjöld. 

Flokkur fyrir yfir 2000 stig verður haldinn ef og ef aðeins allavega 14 skákmenn skrá sig til leiks. 

Viðbót 18. október: Staðan verður tekin klukkan 16 í dag og reynt að komast til móts við þá sem skráðu sig á yfir 2000 mótið með mögulegum breytingu á mótinu eða frestun svo fleiri fái kost á að skrá sig. 

Skráning í báða flokka fer í gegnum sama skráningarform. 

Skráningu lýkur klukkan 16 í dag!

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur