WOW-air mótið hefst mánudaginn 11. apríl



Vormot_Background_FB

Hið glæsilega Wow air Vormót Taflfélags Reykjavíkur hefst í skákhöll félagsins að Faxafeni 12 mánudaginn 11. apríl  Mótið er nú haldið í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem eitt af aðalmótum Taflfélags Reykjavíkur.

Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á fyrstu 40 leikina en eftir það bætast við 15 mínútur.  30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.  Teflt verður einu sinni í viku á mánudagskvöldum og hefjast umferðirnar kl. 19.30  Tvær yfirsetur (bye) verða leyfðar í umferðum 1-5.

Mótið er fyrst og fremst hugsað fyrir sterkari skákmenn og er frábær upphitun fyrir Skákþing Íslands sem hefst að móti loknu.

Í A – meistaraflokk hafa allir skákmenn með GM/IM/FM/WGM titil þátttökurétt, auk allra skákmanna með yfir 2200 Elo skákstig.

Í B – áskorendaflokk hafa allir skákmenn með yfir 2000 Elo skákstig þátttökurétt.

Skákmenn sem uppfylla stigalágmörkin 1. apríl eru gjaldgengir

Tveimur skákmönnum á stigabilinu 2000 – 2199 verður boðið sæti í A flokki.  Þau sæti eru fyrst og fremst hugsuð fyrir unga og upprennandi skákmenn á öllum aldri í mikilli framför.

Allt að fjórum skákmönnum sem ekki hafa tilskilin stig fyrir B flokkinn verður boðin þátttaka þar.  Þau sæti eru fyrst og fremst ætluð efnilegustu skákkrökkunum og unglingunum, en allir geta sótt um.

Hægt er að sækja um þessi 6 sæti með því að senda póst á taflfelag@taflfelag.is eða hafa samband við formann félagsins Björn Jónsson í síma 8999268 eigi síðar en 4. apríl.

Sigurvegari Wow air Vormótsins í fyrra var Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari.  Sverrir Örn Björnsson sigraði í B flokki og annar varð Vignir Vatnar Stefánsson.  Þeir tveir unnu sér inn keppnisrétt í A – flokki í ár, en reyndar hefur Vignir þegar náð tilskyldum 2200 stigum til að keppa í flokknum!

Glæsileg verðlaun eru í mótinu í boði Taflfélags Reykjavíkur og vina okkar hjá Wow air.

A – Meistaraflokkur:

1. Flugmiði með Wow air á einn af áfangastöðum félagsins í evrópu (skattar og gjöld innifalið) plús 40.000 krónur

2. 40.000 krónur

3. 20.000 krónur

B – Áskorendaflokkur:

1. Flugmiði með Wow air á einn af áfangastöðum félagsins í evrópu (skattar og gjöld innifalið) plús 20.000 krónur

2. 20.000 krónur

3. 10.000 krónur

Auk þess verða veittir bikarar fyrir efsta sætið í hvorum flokki auk farandbikars fyrir sigurvegara A flokks.  Verðlaunapeningar fyrir annað og þriðja sætið í báðum flokkum.

Tvö efstu sætin í B – flokki veita þátttökurétt í A flokki að ári.

Umferðatafla:

  1. umferð mánudag 11. apríl  kl. 19.30
  2. umferð mánudag 18. apríl  kl. 19.30
  3. umferð mánudag 25. apríl  kl. 19.30
  4. umferð mánudag 02. maí  kl. 19.30
  5. umferð mánudag 09. maí  kl. 19.30
  6. umferð mánudag 16. maí   kl. 19.30
  7. umferð mánudag 23. maí   kl. 19.30

Verðlaunaafhending mun fara fram laugardaginn 28. maí, kl. 14.00 fyrir upphaf umferðar í lokamóti Bikarsyrpu TR.

Tekið skal fram að 25% af verðlaunafé úr Wow air mótinu verður haldið eftir ef verðlaunahafar mæta ekki á verðlaunaafhendinguna til að taka við verðlaunum sínum án gildra ástæðna.

Ef fresta þarf skákum verða þær viðureignir tefldar á miðvikudagskvöldum kl. 19.30 (samhliða skákmóti öðlinga).

Þátttökugjald er kr. 5000 fyrir félagsmenn Taflfélags Reykjavíkur en kr. 10.000 fyrir aðra.

Þeir skákmenn sem skrá sig fyrir 7. apríl fá 50% afslátt af þátttökugjaldinu.  Frítt er fyrir titilhafa á mótið skrái þeir sig fyrir 7. apríl, annars kr. 5000.

Skráningarform

Skráðir keppendur