Unglingameistaramót TR fer fram í dag



Unglingameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 4.nóvember í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13. 

Tefldar verða 7 umferðir með atskák-tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á mann auk 5 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum 15 ára og yngri (fædd 2003 og síðar) óháð félagsaðild. Aðgangur er ókeypis. Um miðbik móts verður gert hlé og verður keppendum boðið upp á hressingu. Áætlað er að mótinu ljúki um kl.17:30.

Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Unglingameistari T.R. 2018. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokki auk þess sem efsti TR-ingurinn hlýtur titilinn Stúlknameistari T.R. 2018.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokkunum 13-15 ára (f. 2003-2005), 11-12 ára (f. 2006-2007), 9-10 ára (f. 2008-2009) sem og 8 ára og yngri (f. 2010 og síðar) í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Núverandi Unglingameistari TR er Kristján Dagur Jónsson. Núverandi Stúlknameistari TR er Batel Goitom Haile. Nánari upplýsingar um mótið 2017 má nálgast hér.

Skráning í mótið fer fram á hefðbundnu rafrænu skráningarformi. Einnig má finna skráningarformið á skak.is. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.