Skákþing Reykjavíkur 2015



Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 4. janúar kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á 40 leiki auk 30 sek. á leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram tvisvar í viku, á miðvikudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Mótið í ár er haldið sérstaklega til heiðurs fyrsta stórmeistara þjóðarinnar, eðal TR-ingnum Friðriki Ólafssyni, sem verður áttræður meðan mótið stendur stendur yfir. Skákmenn eru hvattir til að heiðra meistarann með þátttöku sinni í aðalmóti vetrarins sem nú fer fram í 84. sinn!

Boðið er upp á tvær yfirsetur (bye) í umferðum 2-6. Keppandi skal leggja inn skriflega beiðni um yfirsetu til skákstjóra í síðasta lagi við upphaf umferðarinnar á undan. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.

Dagskrá:

1. umferð sunnudag 4. janúar kl. 14
2. umferð miðvikudag 7. janúar kl. 19.30
3. umferð sunnudag 11. janúar kl. 14.00
4. umferð miðvikudag 14. janúar kl. 19.30
5. umferð sunnudag 18. janúar kl. 14.00
6. umferð miðvikudag 21. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 25. janúar kl. 14
8. umferð miðvikudag 28. janúar kl. 19.30
9. umferð sunnudag 1. febrúar kl. 14

Verðlaun:

1. sæti kr. 120.000
2. sæti kr. 60.000
3. sæti kr. 30.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 Besti árangur undir 1600 skákstigum – bókaverðlaun Besti árangur undir 1400 skákstigum – bókaverðlaun Besti árangur undir 1200 skákstigum – bókaverðlaunBesti árangur stigalausra – bókaverðlaun

 

Fide stig gilda við úthlutun stigaverðlauna – annars íslensk stig.

Þátttökugjöld:

kr. 5.000 fyrir 16 ára og eldri
kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri

Keppt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2015” og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort útreikningur), en stigaútreikningur látinn skera úr um verðlaunasæti. Í aukaverðlaunaflokkum ganga verðlaun óskipt til þess, sem hefur flest stig eftir stigaútreikning.

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur. Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Athugið að skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 13.45.

  • Skákþing Reykjavíkur 2014
  • Skákmeistarar Reykjavíkur
  • Mótstöflur