Lokamót Páskaeggjusyrpunnar fer fram á sunnudag



Nú styttist í eina af skemmtilegustu mótasyrpum ársins! Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur sló rækilega í gegn í fyrra þegar vel á annað hundrað krakkar tóku þátt í þremur mótum syrpunnar. Í ár endurtökum við leikinn og með þessu framtaki vill T.R. í samstarfi við Nóa Síríus þakka þeim gríðarlega fjölda sem sótt hefur barna- og unglingaæfingar félagsins í vetur.

Frábærar aðstæður eru hjá Taflfélagi Reykjavíkur, margir reyndir þjálfarar og félagið býður eitt félaga upp á ítarlegasta námsefni sem völ er á hér á landi. Allar æfingar og allt námsefni er frítt, það þarf bara að mæta og taka þátt í þessum stórskemmtilegu æfingum!

Mótin í ár verða reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga og glæsileg verðlaun eru í öllum mótunum, sem og fyrir samanlagðan árangur úr þeim öllum. Í hverju móti verður síðan dregin út glæsileg DGT Easy skákklukka handa einum heppnum þátttakanda.

Páskaeggjasyrpan mun samanstanda af þremur skákmótum sem haldin verða þrjá sunnudaga fyrir páska í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12:

1. NÓA KROPP PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 15. mars kl. 14

2. NIZZA LAKKRÍS PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 22. mars kl. 14

3. NIZZA HRÍSKÚLU PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 29. mars kl.14

  • Keppt verður í tveimur flokkum, 1-3 bekk (og yngri) og 4-10 bekk.
  • Sex umferðir verða tefldar í hverju móti með 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
  • Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir alla hressu skákkrakkana sem taka þátt í syrpunni!
  • Verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki á hverju páskaeggjamóti.
  • Stór páskaegg fyrir þrjú efstu sætin samanlagt úr mótunum í hvorum flokki (misstór eftir sætum)
  • Allir sem taka þátt í minnst tveimur af þremur mótum í syrpunni fá lítið páskaegg í verðlaun fyrir þátttökuna og verða þau veitt í lok þriðja mótsins í syrpunni.
  • Dregin verður út ein stórglæsileg DGT Easy skákklukka handa heppnum skákkrakka á hverju páskaeggjamóti!

Skráning fer fram hér og lista yfir skráða keppendur má sjá hér.

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til að sjá ykkur á PÁSKAEGGJASYRPUNNI 2015!