Hraðskákmót T.R. fer fram á sunnudag



Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 20. október kl. 14:00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss Perfect kerfi og er umhugsunartími 5 mínútur á skák.

Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Gagnaveitumótið – Haustmót T.R.

Núverandi Hraðskákmeistari T.R. er Daði Ómarsson.

  • Bein útsending
  • Úrslit, staða og pörun
  • Skákir: 1   2   3   4   5   6   7   8
  • Myndir