Haustmót TR hefst á morgun!



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2021 hefst sunnudaginn 12. september kl. 13:00. Mótið, sem var fyrst haldið árið 1934, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Helgi Áss Grétarsson.

FYRIRKOMULAG:

Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver, þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

Tímamörk í lokuðum flokkum eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Tímamörk í opnum flokki eru 60 mínútur auk þess sem 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina (60+30). Enginn viðbótartími er eftir 40 leiki í opnum flokki. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

Yfirdómari mótsins verður Ríkharður Sveinsson.

DAGSKRÁ:

  1. umferð: Sunnudagur 12. september kl. 13:00
  2. umferð: Miðvikudagur 15. september kl. 18:30
  3. umferð: Föstudagur 17. september kl. 18:30
  4. umferð: Sunnudagur 19. september kl. 13:00
  5. umferð: Miðvikudagur 22. september kl. 18:30
  6. umferð: Föstudagur 24. september kl. 18:30
  7. umferð: Sunnudagur 26. september kl. 13:00
  8. umferð: Miðvikudagur 6. október kl. 18:30
  9. umferð: Föstudagur 8. október kl. 18:30

 

 

 

Teflt er á sunnudögum, miðvikudögum og föstudögum. Athugið að kvöldumferðirnar hefjast nú klukkan 18:30.

Hlé verður á mótshaldinu eftir 7. umferð vegna Íslandsmóts skákfélaga, en tvær síðustu umferðirnar verða tefldar eftir mótið.

VERÐLAUN:

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000kr.
2. sæti kr. 50.000kr.
3. sæti kr. 25.000kr.
4. og 5. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2021.

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 25.000kr.
2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2021.

Verðlaun í Opnum flokki:
1. sæti kr. 15.000kr.
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2021.
Stigaverðlaun (verðlaunagripur) fyrir stigalausa, U1200 og U1400.

Sigurvegari hvers flokks áskilur sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur í A-flokki jafnir að vinningum í efstu sætum verður verðlaunafé skipt eftir Hort-kerfi. Lokaröð keppenda í öllum flokkum ákvarðast af mótsstigum (tiebreaks).

MÓTSSTIG (Tie-break):

Lokaðir flokkar: 1.Sonneborn-Berger 2.Innbyrðis úrslit 3.Fjöldi sigra.
Opinn flokkur: 1.Buchholz (-1) 2.Buchholz 3.Innbyrðis úrslit 4.Fjöldi sigra.

ÞÁTTTÖKUGJÖLD:

5.000kr fyrir 18 ára og eldri (3.500kr fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri).
3.000kr fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri).

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Þátttökugjöld greiðast með reiðufé við upphaf móts eða innlögn á reikning félagsins.

SKRÁNING:

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 11. september kl.22:00. Skráningu í opinn flokk lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. 12. september kl. 12:45.