Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2011 hefst sunnudaginn 25. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt.
Mótið er öllum opið.
Teflt er í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Alls verða tefldar 9 skákir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er tefldar níu umferðir eftir svissnesku kerfi.
Skráning fer fram á heimasíðu T.R., https://taflfelag.is/
Hægt er að fylgjast með skráningu hér.
Athygli er vakin á því að skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 24. september kl. 18.
Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Guðmundur Kjartansson.
Dagskrá:
1. umferð: Sunnudag 25. september kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 28. september kl.19.30
3. umferð: Föstudag 30. september kl.19.30
4. umferð: Sunnudag 2. október kl.14.00
5. umferð: Miðvikudag 5. október kl.19.30
—Hlé vegna Islandsmóts skákfélaga—
6. umferð: Miðvikudag 12. október kl.19.30
7. umferð: Föstudag 14. október kl.19.30
8. umferð: Sunnudag 16. október kl. 14.00
9. umferð: Miðvikudag 19. október. kl.19.30
Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2012
Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2012
Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2012
Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2012
Ef það bætast við fleiri lokaðir flokkar, verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki.
Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu.
Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.
Þátttökugjöld:
3500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (4000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.000 kr. fyrir aðra).
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins