Fjórða mót Bikarsyrpunnar ásamt Bikarmóti stúlkna fer fram helgina 10.-12. febrúar



BikarsyrpanBanner_generic

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.

Fjórða mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 10. febrúar og stendur til sunnudagsins 12. febrúar. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

Við endurtökum leikinn og höldum að auki meðfram Bikarsyrpunni Bikarmót stúlkna sem mæltist vel fyrir á síðastliðnum mótum. Með því gefst stelpum sem vilja prófa form Bikarsyrpunnar aukið tækifæri á að spreyta sig áður en þær taka þátt í sjálfri Bikarsyrpunni. Tefldar verða fimm umferðir í stúlknamótinu, ein á föstudag og tvær hvorn daginn laugardag og sunnudag, en að öðru leyti verður fyrirkomulag hið sama og í Bikarsyrpunni. Nánari dagskrá má sjá hér að neðan.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Dagskrá Bikarsyrpu IV:

1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 11. febrúar kl. 16.00 (lau)
5. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
6. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)
7. umferð: 12. febrúar kl. 16.00 (sun)

Dagskrá Bikarmóts stúlkna:

1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
5. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)

Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni síðustu umferð hvors móts fyrir sig.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu (í stúlknamótinu er ein yfirseta leyfð í umferðum 1-3). Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.

Sigurvegari hvors móts hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!

Skákstjórn: Þórir Benediktsson (867 3109) og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (862 6290)

Skráningarform

Skráðir keppendur