Vignir Vatnar Stefánsson tapaði í annarri umferð Heimsmeistaramóts áhugamanna sem fór fram í dag. Vignir hafði svart gegn keppanda frá Mongólíu og lenti í vandræðum í miðtaflinu sem leiddi til liðstaps og varð hann að játa sig sigraðan eftir 43 leiki. Vignir mætir án efa sterkur til leiks í þriðju umferð sem hefst á morgun kl. 12.30 en þá mætir hann keppanda frá Brunei. Sá hefur 1884 Elo stig en Vignir stýrir hvítu mönnunum.
- Skákir Vignis
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins