Vignir Vatnar Stefánsson sigraði rúmenskan andstæðing sinn í áttundu og næstsíðustu umferð í Heimsmeistaramóti áhugamanna en Rúmeninn er meðal stigahæstu keppenda í mótinu. Glæsilegur og mikilvægur sigur hjá Vigni sem gefur honum góða möguleika á að ljúka keppni meðal tuttugu efstu. Vignir er nú í 22.-33. sæti með 5,5 vinning en á morgun mætir hann fimmtán ára indverskri stúlku sem hefur hækkað mikið á stigum að undanförnu. Vignir hefur hvítt og sigur væri algjörlega frábær en hvernig sem fer er ljóst að hann hækkar mikið á stigum.
Baráttan á toppnum er orðin gríðarlega spennandi en fjórir keppendur eru nú efstir og jafnir með 7 vinninga og tveir fylgja með 6,5 vinning. Lokaumferðin hefst á morgun kl. 12.30 að vanda.
- Skákir Vignis
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins