Íslandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur mæta Taflfélagi Bolungarvíkur í úrslitaviðureign Hraðskákkeppni taflfélaga næstkomandi sunnudag. Viðureignin fer fram í skákhöll TR að Faxafeni 12 og hefst kl.13. Ljúffengar veitingar verða í boði og áhorfendur eru hvattir til að mæta og fylgjast með mörgum af bestu skákmönnum þjóðarinnar etja kappi í spennandi hraðskákum.