Fjórða umferð hér í Mysliborz er nýhafin og hægt er að fylgjast með þremur af okkar piltum í beinni útsendingu á heimasíðu mótsins http://www.mysliborz.caissa.com.pl/2007/online/
Þar eru Matthías Pétursson með svart á móti Aleksander Smirnov (sem vann Villa í 2. umferð) og Vilhjálmur Pálmason er með svart á móti Grzegorz Stala.
Aron Ellert Þorsteinsson er síðan með hvítt á móti Konstantin Loy.
Fyrsta innbyrðisviðureignin innan okkar hóps fer nú fram – okkur til mikilla ama, enda erum við ekki komnir hér til að tefla innbyrðis. En svona eru nú bara reglurnar og þeir Daði og Einar verða að bíta í það súra.
Af skákunum er það annars að segja að Matti, sem aldrei hefur teflt Sikileyjarvörn á æfinni (svo ég viti til) tefldi hana núna í von um að fá upp sömu stöðu og Villi fékk á móti Smirnov – fyrst og fremst vegna þess að þetta var svo athyglisverð staða sem kom upp.
Smirnov fann á sér að eitthvað var rotið við þetta og breytti út af.
Vilhjálmur er að tefla afbrigði sem hann skoðaði síðast löngu fyrir samræmdu prófin. Man í raun ekkert eftir þessu afbrigði sjálfur…
Aron var síðan að stúdera hvítt gegn Nimzo-indverskri vörn rétt fyrir skákina. Andstæðingur hans beitti hugmynd sem ég var ekki búinn að fara yfir.
Torfi Leósson