Yfirburðir úkraínsku ofurstórmeistaranna í Stórmeistaramóti Taflfélags Reykjavíkur eru algjörir. Þegar tvær umferðir lifa af móti eru Sergey Fedorchuk (2656) og Mikhailo Oleksienko (2608) jafnir í efsta sæti með 6,5 vinning, 2,5 hálfum vinningi meira en næstu keppendur sem eru danski alþjóðlegi meistarinn Simon Bekker-Jensen (2420) og alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434).
Það er magnað að fylgjast með svo sterkum skákmönnum tefla og þeir hafa margoft sýnt í mótinu hversvegna þeir hafa á milli 2600 og 2700 Elo stig. Heilt yfir hafa þeir verið í litlum vandræðum þó að stöku sinnum hafi Íslendingarnir náð að sitja í þeim en hafa svo misst stöðurnar niður, oftar en ekki í endatöflum. Til fróðleiks má geta þess að Oleksienko hafði það á orði að íslensku skákmennirnir þyrftu að stúdera endatöfl. Gaman að þessu og vissulega aðeins vel meint hjá þeim úkraínska.
Áttunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 15. Þá mætast m.a. Fedorchuk og Oleksienko og einhverjir myndu sjálfsagt ganga svo langt að spá stuttu jafntefli. Á vef mótsins eru ítarlegri pistlar með uppgjöri hverrar umferðar fyrir sig þar sem Ingvar Þór Jóhannesson fer hamförum í skemmtilegum og fróðlegum skrifum sínum.
- Chess-Results
- Vefur mótsins
- Myndir (ÁK)