Skeljungsmótið – Skákþing Reykjavíkur 2008 mun hefjast sunnudaginn 6. janúar 2008. Teflt verður, að venju, á sunnudögum kl. 14.00 og miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30.
Teflt verður í einum flokki, opnum öllum skákmönnum. Tímamörk eru hefðbundin, eða 90 mínútur á skák, en að auki bætast við 30 sekúndur á leik.
Dagskrá mótsins
1. umferð sunnudag 6. janúar kl. 14-18
2. umferð miðvikudag 9. janúar kl. 19.30-23
3. umferð föstudag 11. janúar kl. 19.30-23
4. umferð sunnudag 13. janúar kl. 14-18
5. umferð miðvikudag 16. janúar kl. 19.30-23
6. umferð föstudag 18. janúar kl. 19.30-23
7. umferð sunnudag 20. janúar kl. 14-18
8. umferð miðvikudag 23. janúar kl. 19.30-23
9. umferð föstudag 25. janúar kl. 19.30-23
Skákþingið er reiknað til íslenskra og alþjóðlegra skákstiga.
Skráning fer fram í síma 895-5860 (Ólafur) eða í netföngin taflfelag@taflfelag.is og oli.birna@simnet.is
Nokkrir keppendur hafa þegar skráð sig, þeirra á meðal stórmeistarinn Henrik Danielsen og FIDE-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon.
Þeir sem hafa munnlega lýst yfir áhuga á þátttöku í Skákþinginu eru vinsamlegast beðnir að staðfesta þátttöku sína með tölvupósti.
Verðlaun verða:
1. sæti: 100.000
2. sæti: 60.000
3. sæti: 40.000
Þátttökugjöld verða : 3.500 krónur fyrir fullorðna / 2.000kr. fyrir grunnskólabörn.
Sigurvegarinn hlýtur jafnframt nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.
Núverandi skákmeistari Reykjavíkur er Sigurbjörn J. Björnsson.
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 27. janúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Monradkerfi.