Skákþing Reykjavíkur hefst miðvikudaginn 10. janúar kl. 19.30. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 90 mínútur og bætast við 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.
Athygli er vakin á því að umferðir á sunnudögum hefjast kl. 13:00.
Dagskrá
1. umferð miðvikudag 10. janúar kl. 19.30
2. umferð sunnudag 14. janúar kl. 13.00
3. umferð miðvikudag 17. janúar kl. 19.30
4. umferð sunnudag 21. janúar kl. 13.00
5. umferð miðvikudag 24. janúar kl. 19.30
6. umferð sunnudag 28. janúar kl. 13.00
7. umferð miðvikudag 31. janúar kl. 19.30
8. umferð sunnudag 04. febrúar kl. 13.00
9. umferð miðvikudag 07. febrúar kl. 19.30
Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 11. febrúar kl. 13 og verður þá jafnframt verðlaunaafhending fyrir Skákþingið.
Tímamörk
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn
IA Ólafur Ásgrímsson og IA Ríkharður Sveinsson (rz@itn.is / s.772 2990)
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 80.000
- 2. sæti kr. 40.000
- 3. sæti kr. 20.000
Stigaverðlaun
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (rating performance – eigin stig) – kr. 10.000.
- U2000 og U1800 – kr. 10.000.
- U1600, U1400, U1200, stigalausir – bókaverðlaun.
Fide stig gilda við úthlutun stigaverðlauna (íslensk stig til vara). Hver keppandi getur aðeins hlotið ein aukaverðlaun (ofangreind röð verðlauna gildir).
Þátttökugjöld (greiðist með reiðufé við upphaf móts).
kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.
Skráningarform
Keppt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2018” og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en stigaútreikningur (tiebreaks) látinn skera úr um lokaröð. Í öðrum verðlaunaflokkum ganga verðlaun óskipt til þess sem hefur flest stig eftir stigaútreikning. Röð stigaútreiknings: 1. Innbyrðis úrslit 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz (median) 4. Sonneborn-Berger.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Skákir mótsins verða slegnar inn og birtar á pgn formi.
Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 19.15.