Skákmót öðlinga hefst miðvikudaginn 12. febrúar!



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1985 og fyrr) hefst miðvikudaginn 12. febrúar kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Eftir 40 leiki bætast við 15. mínútur. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Lenka Ptácníková. Teflt er á miðvikudagskvöldum frá 12. febrúar, með hléi þann 26. febrúar vegna Íslandsmóts skákfélaga. Boðið verður upp á flýta skákum fyrir þá keppendur í mótinu sem taka munu þátt í hraðskákkeppni taflfélaga þann 19. febrúar.

Dagskrá 

1. umferð miðvikudag 12. febrúar kl. 18.30

2. umferð miðvikudag 19. febrúar kl. 18.30

ENGIN UMFERÐ 26. FEBRÚAR!! 

 

3. umferð miðvikudag 5. mars kl. 18.30

4. umferð miðvikudag 12. mars kl. 18.30

5. umferð miðvikudag 19. mars kl. 18.30

6. umferð miðvikudag 26 mars kl. 18.30

7. umferð miðvikudag 2. apríl kl. 18.30

 

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram sunnudaginn 6. apríl kl. 13:00 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk í mótinu
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Eftir 40 leiki bætist við korter.

Verðlaun í mótinu
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts) eða lagt inn á reikning félagsins.

kr. 5.000

Skákstjórn: Gauti Páll Jónsson. Bendum á taflfelag@taflfelag.is

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur