Skákmót öðlinga hefst á miðvikudagskvöld



Skakmot_odlinga_2017

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 22. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina  auk 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Stefán Arnalds.

Mótið verður jafnframt Íslandsmót 50 ára og eldri þar sem efsti keppandinn í hópi þeirra sem fæddir eru 1967 og fyrr hlýtur Íslandsmeistaratitilinn. Sigurvegari mótsins hlýtur titilinn Skákmeistari öðlinga. Verði keppendur jafnir að vinningum mun stigaútreikningur (tiebreaks) skera úr um lokaröð og þar með verðlaun.

Athugið að lokaumferð mótsins fer fram föstudaginn 31. mars.

Dagskrá:
1. umferð miðvikudag 22. febrúar kl. 19.30
2. umferð miðvikudag 1. mars kl. 19.30
3. umferð miðvikudag 8. mars kl. 19.30
4. umferð miðvikudag 15. mars kl. 19.30
5. umferð miðvikudag 22. mars kl. 19.30
6. umferð miðvikudag 29. mars kl. 19.30
7. umferð föstudag 31. mars kl. 19.30

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 12. apríl kl. 19:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts)

kr. 5.000 – Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi

Skákstjórn

Þórir Benediktsson; thorirbe76@gmail.com, s. 867 3109

Skráningarform

Skráðir keppendur