Skákmót öðlinga hefst 25. mars



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 25. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.Skákmót öðlinga verður nú haldið í 24. sinn. Núverandi Skákmeistari öðlinga er alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason. Dagskrá:

  • 1. umferð miðvikudag 25. mars kl. 19.30

  • 2. umferð miðvikudag 8. apríl kl. 19.30

  • 3. umferð miðvikudag 15. apríl kl. 19.30

  • 4. umferð miðvikudag 22. apríl kl. 19.30

  • 5. umferð miðvikudag 29. apríl kl. 19.30

  • 6. umferð miðvikudag 6. maí kl. 19.30

  • 7. umferð miðvikudag 13. maí kl. 19.30

Mótinu lýkur miðvikudaginn 20. maí kl. 19:30 með hraðskákmóti og verðlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.Þátttökugjald er kr. 4.000 fyrir aðalmótið og kr 500 fyrir hraðskákmótið. Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi.

Skráning fer fram hér.

Hér er hægt að fylgjast með skráningu.

  • Skákmót öðlinga 2014
  • Skákmeistarar öðlinga
  • Mótstöflur