Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1986 og fyrr) hefst miðvikudaginn 18. febrúar kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Eftir 40 leiki bætast við 15. mínútur. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Sigurbjörn Björnsson.
Ath: Teflt er á miðvikudagskvöldum frá 18. febrúar, með hléi þann 25. mars vegna Reykjavik open.
Dagskrá:
1. umferð miðvikudag 18. febrúar kl. 18.30
2. umferð miðvikudag 25. febrúar kl. 18.30
3. umferð miðvikudag 4. mars kl. 18.30
4. umferð miðvikudag 11. mars kl. 18.30
5. umferð miðvikudag 18. mars kl. 18.30
ENGIN UMFERÐ 25. mars!!
6. umferð miðvikudag 1, apríl kl. 18.30
7. umferð miðvikudag 8. apríl kl. 18.30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.
Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 15. apríl kl. 19:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.
Tímamörk í mótinu:
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Eftir 40 leiki bætist við korter.
Verðlaun í mótinu:
1. sæti kr. 50.000
2. sæti kr. 25.000
3. sæti kr. 15.000
Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).
Oddastig: (e. tiebreaks)
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart
Þátttökugjald kr. 6.000
Skráning fer fram a Sportabler
Skráningarform:
Einnig er hægt að millifæra á reikning félagsins til að staðfesta skráningu.
Kt: 640269-7669 Rk: 0101-26-640269
Skýring: Öðl26
Skákstjórn: Gauti Páll Jónsson. gauti@taflfelag.is Bendum einnig á taflfelag@taflfelag.is
Þegar skáðir keppendur (kemur fljótlega)
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins