Taflfélag Reykjavíkur býður öllum vinnustöðum að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2014 sem fram fer í félagsheimili T.R., Skákhöllinni Faxafeni 12, miðvikudaginn 12. febrúar og hefst kl. 19.30. Mótið, sem er styrktarmót Taflfélags Reykjavíkur, er kjörið fyrir hinn almenna skákáhugamann þar sem vinnufélagar geta myndað lið og spreytt sig gegn skákmönnum annarra vinnustaða.
Dagsetning
Miðvikudagur 12. febrúar kl. 19.30
Staður
Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12
Keppnisfyrirkomulag
Þriggja manna lið með 1-2 varamönnum
Vinnustaður getur sent nokkur lið til keppni sem verða þá auðkennd sem A-lið, B-lið o.s.frv.
Svissneskt pörunarkerfi og flestir vinningar gilda
7-11 umferðir (bundið þátttöku)
Umhugsunartími er 10 mínútur á mann
Verðlaun
1. Eignabikar fyrir vinnustaðinn og farandbikar til vörslu í 1 ár auk verðlaunapeninga fyrir keppendur
2. Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga fyrir keppendur
3. Eignabikar fyrir vinnustaðinn auk verðlaunapeninga fyrir keppendur
Þátttökugjald
15.000 kr fyrir hvert lið
Nánari upplýsingar
Ríkharður Sveinsson, stjórnarmaður í Taflfélagi Reykjavíkur. Netfang: rz@itn.is gsm: 7722990.
Skráning og staðfesting þátttöku
Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur
Þátttökugjaldið greiðist inn á reikning Taflfélags Reykjavíkur. Reikningsnúmer: 0101-26-640269. Kennitala: 640269-7669. Vinsamlegast setjið í skýringu: VINNUST
Verið velkomin að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2014 – hlökkum til að sjá ykkur!
- Skráð lið