Reitirnir eru enn volgir eftir baráttuna í sjöttu umferð Skákþings Reykjavíkur sem lauk um miðnætti í gærkvöldi. Engu að síður hefur Kjartan Maack þegar innfært skákirnar sem eru aðgengilegar í hlekk hér að neðan. Sjöunda umferð fer fram á sunnudag og hefst kl. 14.