Sigur og jafntefli í 8. umferð á Politiken



Daði Ómarsson (2091) gerði jafntefli við Danann,  Michael Nguyen (2196), í áttundu umferð Politiken Cup sem fram fór í dag.  Daði hefur 4,5 vinning í 89.-130. sæti en hann tapaði tveimur skákum án þess að tefla.

Atli Antonsson (1720) sigraði Danann,  Julius Mølvig (1256), og er með 3 vinninga í 222.-256. sæti.

Alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377), Bjarni Jens Kristinsson (1985) og Ólafur Gísli Jónsson (1899) unnu allir í dag.  Bragi er efstur Íslendinganna með 6 vinninga en Daði og Bjarni koma næstir með 4,5 vinning.

Rússneski stórmeistarinn og stigahæsti skákmaður mótsins, Vladimir Malakhov (2707) er einn efstur með 7,5 vinning þegar tveimur umferðum er ólokið.  Indverski stórmeistarinn, Parmerian Negi (2590), kemur næstur með 7 vinninga en 11 skákmenn eru með 6,5 vinning.

Í níundu og næstsíðustu umferð sem fer fram á morgun kl. 11 mætir Daði Dananum,  Jacob Kaaber (2184), en Atli mætir Dananum, David Kinch Palvig (1868).  Bragi teflir á einu af efstu borðunum og verður skák hans í beinni útsendingu á heimasíðu mótsins.

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).

Heimasíða mótsins