Lið Salaskólakrakka bar sigur úr býtum í d-flokki Boðsmótsins, en sveitin sigraði hið blandaða lið TR 3,5-0,5 í síðustu umferð og samtals því 11,5-4,5.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir fékk flesta vinninga, eða 3,5. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir stóð sig best í TR-liðinu og fékk 3 vinninga.
Úrslit 4. umferðar:
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir 0,5-0,5
Páll Andrason – Kristján Heiðar Pálsson 1-0
Ragnar Eyþórsson – Hjálmar Sigurvaldason 1-0
Birkir Karl Sigurðsson – “Skotta” 1-0*