Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur fór fram í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur sunnudaginn 25. febrúar í hinu besta vetrarveðri.
Þátttaka var með ágætum, en samtals tóku 49 krakkar þátt, 34 í opnum flokki og 15 í stúlknaflokki. Setti það og góðan brag á mótið að 12 norsk ungmenni tóku þátt. Mótshaldið gekk vel, keppendur sýndu fyrirmyndar framkomu og hart var barist í báðum flokkum.
Stúlknameistarmót Reykjavíkur snerist fljótlega upp í kapphlaup milli Batel Goitom Haile og Freyju Birkisdóttur. Batel hafði sigur í innbyrðisviðureign þeirra leiksystra í 3. umferð og það stefndi í að henni tækist að verja titil sinn frá í fyrra þar til í næstsíðustu umferð, en þá tapaði hún fyrir Guðrúnu Fanneyju Briem. Við það náði Freyja að jafna Batel að vinningum og hafði svo sigur á stigum. Í 3. sæti lenti svo Ásthildur Helgadóttir. Hún tapaði einungis fyrir efstu tveimur en gaf engum öðrum grið.
Aldursflokkasigurvegarar í stúlknaflokki:
- f. 2006-2007: Freyja Birkisdóttir
- f. 2008-2009: Katrín María Jónsdóttir
- f. 2010 og síðar: Guðrún Fanney Briem
Keppendur skiptust um að hafa forystu í opna flokknum og fyrir lokaumferðina gátu hvorki fleiri né færri en 6 hrósað sigri. Það var hinsvegar Sæmundur Árnason sem sýndi stáltaugar í síðustu umferð og tryggði sér titilinn Unglingameistari Reykjavíkur. Sæmundur hlaut 6 vinninga og varð hálfum vinningi á undan Benedikt Briem og Óskari Víkingi Davíðssyni, sem næstir komu.
Aldursflokkasigurvegarar í opnum flokki:
- f. 2002-2003: Sæmundur Árnason
- f. 2004-2005: Óskar Víkingur Davíðsson
- f. 2006-2007: Benedikt Briem
- f.2008-2009: Einar Tryggvi Petersen
- f.2010 og síðar: Josef Omarsson
Nánari úrslit eru á Chess-Results.