Róbert Harðarson varð í kvöld hraðskákmeistari öðlinga eftir spennandi og fjölmennt mót sem fram fór í félagsheimili TR í kvöld. Róbert fékk 7 vinninga í 9 skákum og hafði betur en Kristján Guðmundsson og Jóhann H. Ragnarsson eftir stigaútreikning. Í kvöld fór jafnframt fram verðlaunaafhending fyrir sjálft aðalmótið. Birna bauð upp á glæsilegt bakkelsi.
Ólafur og Birna gáfu nýjan bikar til mótsins þar sem ekki var hægt að koma fyrir fleiri nafnspjöldum á fyrri bikar sem gefin var af Nesti. Fyrsta mótið fór fram 1992 og þar sigraði Jóhann Örn Sigurjónsson.
Lokastaðan
- Róbert Harðarson 7 v. (41 stig – 46 stig)
- Kristján Guðmundsson 7 v. (41 stig – 45 stig)
- Jóhann H. Ragnarsson 7 v. (38,5 stig)
- Gunnar Freyr Rúnarsson 6½ v.
- Júlíus Friðjónsson 5½ v.
- Pálmi R. Pétursson 5½ v.
- Sigurjón Sigurbjörnsson 5½ v.
- Magnús Gunnarsson 5 v.
- Björn Þorsteinsson 5 v.
- Jóhann Örn Sigurjónsson 5 v.
- Kristján Örn Elíasson 5 v.
- Frímann Benediktsson 5 v.
- Haukur Sveinsson 5 v.
- Haukur Bergmann 4½ v.
- Magnús Matthíasson 4½ v.
- Vigfús Ó. Vigfússon 4 v
- Bjarni Sæmundsson 4 v.
- Sæbjörn Guðfinnsson 4 v.
- Þorsteinn Guðlaugsson 4 v.
- Finnur Kr. Finnsson 3½ v.
- Jóhannes Jensson 3½ v.
- Óttar Felix Hauksson 3½ v.
- Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir 3 v.
- Friðþjófur Max Karlsson 2 v.
- Pétur Jóhannesson 1½ v.
- Björgvin Kristbergsson 1½ v.
Skákstjóri var Ólafur S. Ásgrímsson
Sjá einnig: Skák.is