Nú styttist í eina af skemmtilegustu mótasyrpum ársins! Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur sló rækilega í gegn í fyrra þegar vel á annað hundrað krakkar tóku þátt í þremur mótum syrpunnar. Í ár endurtökum við leikinn og með þessu framtaki vill T.R. í samstarfi við Nóa Síríus þakka þeim gríðarlega fjölda sem sótt hefur barna- og unglingaæfingar félagsins í vetur.
Frábærar aðstæður eru hjá Taflfélagi Reykjavíkur, margir reyndir þjálfarar og félagið býður eitt félaga upp á ítarlegasta námsefni sem völ er á hér á landi. Allar æfingar og allt námsefni er frítt, það þarf bara að mæta og taka þátt í þessum stórskemmtilegu æfingum!
Mótin í ár verða reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga og glæsileg verðlaun eru í öllum mótunum, sem og fyrir samanlagðan árangur úr þeim öllum. Í hverju móti verður síðan dregin út glæsileg DGT Easy skákklukka handa einum heppnum þátttakanda.
Páskaeggjasyrpan mun samanstanda af þremur skákmótum sem haldin verða þrjá sunnudaga fyrir páska í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12:
1. NÓA KROPP PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 15. mars kl. 14
2. NIZZA LAKKRÍS PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 22. mars kl. 14
3. NIZZA HRÍSKÚLU PÁSKAEGGJAMÓTIÐ. Sunnudaginn 29. mars kl.14
- Keppt verður í tveimur flokkum, 1-3 bekk (og yngri) og 4-10 bekk.
- Sex umferðir verða tefldar í hverju móti með 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
- Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir alla hressu skákkrakkana sem taka þátt í syrpunni!
- Verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki á hverju páskaeggjamóti.
- Stór páskaegg fyrir þrjú efstu sætin samanlagt úr mótunum í hvorum flokki (misstór eftir sætum)
- Allir sem taka þátt í minnst tveimur af þremur mótum í syrpunni fá lítið páskaegg í verðlaun fyrir þátttökuna og verða þau veitt í lok þriðja mótsins í syrpunni.
- Dregin verður út ein stórglæsileg DGT Easy skákklukka handa heppnum skákkrakka á hverju páskaeggjamóti!
Skráning fer fram hér og lista yfir skráða keppendur má sjá hér.
Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til að sjá ykkur á PÁSKAEGGJASYRPUNNI 2015!