Öruggir Reykjavíkurmeistarar í móti með jöfnu kynjahlutfalli



unglrvk22_23Kynjahlutföll voru jöfn í fyrsta sinn á Barna- og Unglingameistaramóti Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramóti Reykjavíkur og fer mótið í sögubækurnar fyrir vikið, en 15 tóku þátt í hvoru móti, sem fram fór í dag í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni.

unglrvk22_22Krakkar á öllum aldri háðu orrustu á reitunum 64 og voru sérstaklega áberandi hópar krakka úr Taflfélagi Reykjavíkur og úr Skákdeild Fjölnis.

Í Stúlknameistaramótinu vann Iðunn Helgadóttir öruggan sigur, hlaut 7 vinninga af 7 mögulegum, rétt eins og í fyrra, og er því Stúlknameistari Reykjavíkur þriðja árið í röð! Í 2. sæti varð Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir með 6 vinninga og í 3. sæti varð Silja Rún Jónsdóttir með 5 vinninga.

Aldursflokkasigurvegarar í Stúlknameistaramóti Reykjavíkur:

f.2014 Margrét Einarsdóttir

f.2013 Elsa Margrét Aðalgeirsdóttir

f.2012 Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir

f.2011 Silja Rún Jónsdóttir

f.2009 Nadia Dagný Indriðadóttir

f.2007 Iðunn Helgadóttir

Heildarúrslit í Stúlknameistaramóti Reykjavíkur

Í Barna- og Unglingameistaramótinu vann Ingvar Wu Skarphéðinsson nokkuð öruggan sigur. Eftir sigur á Benedikt Þórissyni í háspennuskák í 4. umferð gat Ingvar leyft sér tvö jafntefli til að tryggja sigurinn og endaði með 6 vinninga og er því Unglingameistari Reykjavíkur í ár. Öruggur í 2. sæti varð Gunnar Erik Guðmundsson með fimm og hálfan vinning og svo voru þrír jafnir með fjóran og hálfan vinning, en af þeim var Adam Omarsson efstur á stigum.

Aldursflokkasigurvegarar í Barna- og Unglingameistaramóti Reykjavíkur:

f.2013 Birkir Hallmundarson

f.2011 Sigurður Páll Guðnýjarson

f.2010 Theódór Eiríksson

f.2009 Einar Dagur Brynjarsson

f.2007 Ingvar Wu Skarphéðinsson

f.2006 Benedikt Þórisson

Heildarúrslit í Barna- og Unglingameistaramóti Reykjavíkur

Skákstjórar voru Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir og Torfi Leósson, eins og undanfarin ár.

unglrvk22_20unglrvk22_1unglrvk22_19