Örn Leó Jóhannsson sigraði á fimmtudagsmótinu nú í kvöld. Stefán Pétursson var efstur í kaffihléinu eftir 4. umferð en Örn Leó, sem hafði gert jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum, vann allar sem eftir voru (þ.á.m. Jón Úlfjótsson í síðustu umferð en tap fyrir honum í síðustu umferð kostaði Örn efsta sætið fyrir viku) og stóð uppi sem öruggur sigurvegari. Mótin á fimmtudögum í T.R. verða út maí og jafnvel lengur ef áhugi reynist fyrir hendi. Úrslit urðu annars sem hér segir:
1 Örn Leó Jóhannsson 6
2-3 Stefán Pétursson 5
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 5
4-5 Eiríkur K. Björnsson 4.5
Hallgerður Þorsteinsdóttir 4.5
6-9 Jón Úlfljótsson 4
Gunnar Friðrik Ingibergsson 4
Gunnar Randversson 4
Elsa María Kristínardóttir 4
10-11 Vignir Vatnar Stefánsson 3
Björgvin Kristbergsson 3
12-13 Davíð Sigurðsson 1
Ingvar Vignisson 1
14 Pétur Jóhannesson 0