Öðlingamótið hefst á morgun, Yrðlingamóti aflýst



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1982 og fyr) hefst miðvikudaginn 2. mars kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.

 

Dagskrá 
1. umferð miðvikudag 2. mars kl. 18.30
2. umferð miðvikudag 9.  mars kl. 18.30
3. umferð miðvikudag 16. mars kl. 18.30
4. umferð miðvikudag 23. mars kl. 18.30
5. umferð miðvikudag 30. mars kl. 18.30

HLÉ þann 6. apríl vegna Reykjavík Open 
6. umferð miðvikudag 13. apríl kl. 18.30
7. umferð miðvikudag 20. apríl kl. 18.30

 

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 27. apríl kl. 18:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk í mótinu
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

Verðlaun í mótinu
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts) eða lagt inn á reikning félagsins.

kr. 5.000

Skákstjórn: Auglýst síðar. Bendum á taflfelag@taflfelag.is

Skráningarform í Öðlingamótið 

Öðlingar: Þegar skráðir