Það voru 88 börn og unglingar er mættu til leiks á Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur, sem haldið var í skákhöllinni í Faxafeni í dag, og margbættu þar með fyrra þátttökumet mótsins. Þetta voru og að engu leyti hinir brjáluðu 88, sem um er fjallað í bandarískri kvikmynd er fyllir tugi tvenna í ár og fjallar um niðurlag Vilhjálms nokkurs, en það er nú önnur saga.
Nei, þvert á móti voru keppendur til fyrirmyndar og beindu allri orku sinni að reitunum 64 svo úr varð keppni hin skemmtilegasta og spennandi til muna.
Keppt var í þremur flokkum í fyrsta sinn. Í opnum flokki var keppt um Reykjavíkurmeistaratitla, en einnig var keppt um verðlaun í Yngri flokki 1 – fyrir 9-10 ára krakka (f.2013-2014) – og Yngri flokki 2 – fyrir 8 ára og yngri (f.2015 og síðar). Sökum þátttökufjölda og flokkaskiptingar var kölluð út bakvarðasveitin í dag og sjá mátti fyrrum formann TR og varaformann, æskulýðsforkólfa og mótsstjóra að meiru leggja hönd á plóg, auk varaforseta S.Í.
Víkur þá sögunni að úrslitum mótsins.
Algjör sprengja varð í þátttöku yngsta aldurshópsins – Yngri flokki 2 – og eftir að 32 skákmenn (en ekki taflmenn þó fjöldinn sé sá sami) höfðu hart barist, voru það Dawid Berg Charzynski og Dagur Sverrisson sem urðu jafnir og efstir. Hafði Dawid sigur eftir stigaútreikning. Í 3. sæti og stigahæstur þónokkurra sem jafnir urðu að vinningum varð Alexander Leó Óskarsson.
Aldursflokkasigurvegarar stúlkna og drengja í Yngri flokki 2 urðu:
2015:
Dawid Berg Charzynski
Marey Kjartansdóttir
Helgi Tómas Jónsson
Sigurður Frosti Guðlaugsson
2016:
Dagur Sverrisson
Miroslava Skibina
Alexander Leó Óskarsson
Óðinn Gunnar Halldórsson
2017:
Ernir Loki Tingström
Sigurður H. Jónsson
Högni Þórisson
Í Yngri flokki 1 voru það Tristan Fannar Jónsson og Halldóra Jónsdóttir sem mættust í hreinni úrslitaskák í lokaumferðinni. Hafði Tristan sigur og vann þar með mótið. Halldóra lenti í 3. sæti, en Haukur Víðis Leósson varð annar.
Aldursflokkasigurvegarar stúlkna og drengja í Yngri flokki 1 urðu:
2013:
Tristan Fannar Jónsson
Halldóra Jónsdóttir
Ásgeir Smári Darrason
2014:
Haukur Víðis Leósson
Helen Hekla Priet-Mahéo Eysteinsdóttir
Óðinn Eldjárn Dagbjartsson
Valeria Ovodiuk
Er þá rétt að geta úrslitanna í opnum flokki, en þar fór fram keppni um titla og bikara. Skemmst er frá því að segja að draumur hvers mótsstjóra rættist, þar sem allt var undir í þeirri skák mótsins sem síðust var að klárast, hvar Sigurbjörn Hermannsson stýrði hvítu mönnunum á móti Sigurði Páli Guðnýjarsyni. Það var ef til vill við hæfi að þessi skák sem hafði svo dramatísk áhrif á lokaniðurstöðu mótsins – og var æsispennandi með ýmsum sigurmöguleikum beggja teflenda – skyldi ráðast á harmleiknum um leiktapið, eða “The Tragedy of the Tempo” eins og pólsk-franski stórmeistarinn og skákhugsuðurinn Savielly Tartakower orðaði það. Svo allrar nákvæmni sé gætt voru leiktöpin reyndar tvö í dag og skildu á milli unnins endatafls með drottningu á móti peði og endatafls þar sem kóngarnir einir voru eftir. Viðeigandi lokastaða það, sem endurspeglar hversu hart var barist í dag.
Sigurður Páll Guðnýjarson bar þar með sigur úr býtum í mótinu, en Drengjameistari Reykjavíkur 2023 varð Jósef Omarsson og Stúlknameistari Reykjavíkur 2023 varð Iðunn Helgadóttir. Voru þau þrjú, ásamt Sigurbirni, í einum hnapp á toppi mótsins allan tímann.
Aldursflokkasigurvegarar stúlkna og drengja í opnum flokki urðu:
2007:
Sigurbjörn Hermannsson
Iðunn Helgadóttir
2008:
Katrín María Jónsdóttir
Máni Steinsen
2009:
Einar Dagur Brynjarsson
Einar Helgi Dóruson
2010:
Theódór Eiríksson
Nikola Klimoszewska
2011:
Sigurður Páll Guðnýjarson
Elísabet Erna Skúladóttir
2012:
Walter Robert Clarkson
Jón Louie Thoroddsen
2013:
Birkir Hallmundarson
Taflfélag Reykjavíkur þakkar keppendum og aðstandendum fyrir skemmtilega keppni og góða stund.
Fleiri myndir frá mótinu má nálgast á dropbox.