Magnús Matthíasson sigraði á fimmtdagsmóti Taflfélags Reykjavíkur í síðustu viku. Hann fékk 8 vinninga úr 9 umferðum en keppendur tefldu allir við alla 5 mínútna skákir. Jafnir í 2.-3. sæti urðu þeir Halldór Pálsson og Kristján Örn með 7 vinninga.
Úrslit:
1 Magnús Matthíasson, 8
2-3 Halldór Pálsson, 7
Kristján Örn Elíasson, 7
4 Jón Úlfljótsson, 6
5 Birkir Karl Sigurðsson, 5
6 Guðmundur Lee, 4
7 Oliver Aron Jóhannesson, 3.5
8 Björgvin Kristbergsson, 2
9 Kristófer Jóel Jóhannesson, 1.5
10 Pétur Jóhannesson, 1