Líf og fjör í Skákhöll T.R. um hverja helgi



Líkt og fyrri hluta vetrar eru laugardagsæfingar Taflfélagsins mjög vel sóttar nú í byrjun árs.  Eins og alltaf byrjar dagurinn á stúlknaæfingu í umsjá Sigurlaugar R. Friðþjófsdóttur og  nú fyrsta laugardag febrúarmánaðar voru 11 stelpur mættar til leiks.  20 stelpur hafa verið að mæta reglulega á stúlknaæfingar félagsins í vetur, og er það afskaplega mikið gleðiefni hve félaginu hefur tekist vel til við að fá stelpurnar að skákborðinu.

Að þessu sinni var byrjað á að skoða þriðja heftið af “Lærðu að tefla” eftir formanninn en það fjallar um virði taflmannanna og uppskipti. Síðan var teflt og taflmönnum skipt upp eftir öllum kúnstarinnar reglum!

Klukkan tvö hófst svo almenn barna- og unglingaæfing félagsins með þátttöku á fjórða tug skákþyrstra krakka.  Það er gaman að geta þess að foreldrarnir hafa það gjarnan á orði að Laugardagsæfingarnar séu „heilagar“ í augum barnanna og því gangi þær fyrir mörgum öðrum viðburðum sem kunna að vera í gangi um helgar hjá fjölskyldum með ung börn.

Byrjað var á æfingamóti eins og alltaf og nú tefldar fjórar umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma.  Þar ræður gleðin fyrst og fremst för, mikið er lagt upp úr góðri framkomu og gagnkvæmri virðingu keppenda og allar skákir hefjast og enda á handabandi!  Það þýðir þó ekki að eigi sé hart barist á reitunum 64.  Fórnir, fléttur, klukkubarningur og stöku afleikir fylgja þessum mótum en aðdáunarvert er að sjá hraðar framfarir krakkanna.

Efstir að þessu sinni urðu Aron Þór Mai og Arnar Heiðarsson með fullt hús vinninga.  Aron Þór, sem hefur mætt vel nú á nýju ári, varð sjónarmun á undan á stigum.

Aron Þór Mai sigraði alla andstæðinga sína.

Átta ungir kappar hlutu 3 vinninga, en það voru þeir Alexander Björnsson, Róbert Luu, Björn Magnússon, Guðni Viðar Friðriksson, Kristján Orri Hugason, Bjarki Freyr Marianson, Davíð Dimitry Indriðason og Hreggviður Loki Þorsteinsson.  Alexander tók þar þriðja sætið á stigum, en þessi 7 ára gutti er sonur formanns Taflfélagsins og virðist vera töluvert meira efni en pabbinn var nokkurn tímann!

Alexander Björnsson og Róbert Luu. Alexander féll á tíma í jöfnu endatafli gegn Aroni Þór í lokaumferðinni og endaði í þriðja sæti. Róbert lætur sig aldrei vanta á skákæfingar T.R.

Eftir æfingamótið, hlóðu allir batteríin með kexi og djús og síðan hófst skákkennsla sem að þessu sinni var í höndum skákmeistara félagsins, Kjartans Maack.  Nú voru það mátstef á h-línunni sem voru skoðuð og risu margar hendur á loft eins og ætíð með tillögur að rétta leiknum.

Oft þarf að klóra sér svolítið í kollinum til að sjá besta framhaldið! “Kannski er bara best að slá á h7?”Kjartan sýnir krökkunum hvernig stórmeistarinn Jóhann Hjartarson lagði Gonzales með fallegu mátþema eftir h-línunni í Linares 1995.

Seinni hluta kennslustundar fengu krakkarnir svo afhent eins og alltaf skákhefti með efni kennslustundarinnar að gjöf og sökktu sér niður í að leysa þau fjölmörgu skákdæmi sem þar er að finna.  Dæmin eru við allra hæfi, allt frá einföldum “mát í einum” upp í ansi flókin eins og þetta:

Vitaly Shovunov – Bartlomiej Macieja. Svartur leikur og vinnur.

Strax að lokinni barna- og unglingaæfingu félagsins hófst æfing hjá afrekshóp félagsins en sá hópur æfir tvisvar í viku, á laugardögum og þriðjudögum.

Stúlknaæfingar félagsins eru á laugardögum frá 12.30 til 13.45.  Stúlkur á öllum aldri velkomnar.

Barna- og unglingaæfingar félagsins eru á laugardögum frá 14.00 til 16.00.  Æfingamótið frá 14.00 til 15.00 öllum opið.  Skákkennslustund frá 15.15 til 16.00 fyrir börn og unglinga í Taflfélagi Reykjavíkur.

Allar æfingar félagsins eru ókeypis, og börn og unglingar sem skráð eru í félagið fá ókeypis ítarlegasta og besta skákkennsluefni sem völ er á í dag.  Engin félagsgjöld eru fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri.

Verið velkomin á skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur!

  • Sjáið fleiri myndir hér