Laugarlækjarskóli Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita



Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram í gær 12. apríl  í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Skákmót þetta er samstarfsverkefni Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur og hefur verið haldið með svipuðu fyrirkomulagi í yfir 30 ár.

18 sveitir frá sex skólum borgarinnar kepptu að þessu sinni og var keppnin um 1. sætið æsispennandi. Tefldar voru sjö umferðir eftir Monradkerfi með 10 mínútna
umhugsunartíma á skák.

 

Leikar fóru svo að A-sveit Laugarlækjarskóla vann með 24½ vinning úr 28 skákum og er því Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2010. Í öðru sæti varð A-sveit Rimaskóla sem hafði titil að verja frá því í fyrra. Rimaskóli fékk 23 vinninga. Í þriðja sæti var svo Hólabrekkuskóli með 19 1/2. vinning.

Sigursveit Laugarlækjarskóla A-sveit til vinstir keppir við Laugarlækjarskóli C-sveit. Fremstir eru Örn Leó Jóhannsson og Rafnar Friðriksson.

Stúlknaverðlaunin féllu á þann veg að stúlknasveit Engjaskóla (B-sveit Engjaskóla) vann eftir aukakeppni við stúlknasveit Rimaskóla (D-sveit Rimaskóla). Báðar sveitirnar fengu 14 vinninga í aðalkeppninni en stúlknasveit Engjaskóla vann aukakeppnina 3 – 1. Þriðja sætið kom í hlut Engjaskóla D-sveit.

 

Sigursveit Engjaskóla B-sveit stúlkur til vinstri keppir við Vesturbæjarskóla A-sveit. Fremst eru Elín W. Viggósdóttir og Mías Ólafarson.

Heildarúrslit urðu sem hér segir:

 

1. Laugarlækjarskóli A-sveit. 24 1/2 v. af 28.

2. Rimaskóli A-sveit. 23 v.

3. Hólabrekkuskóli. 19 1/2 v.

4. Laugalækjarskóli B-sveit. 17 v.

5. Árbæjarskóli A-sveit. 15 1/2 v.

6. Árbæjarskóli B-sveit. 15 v.

7. Rimaskóli B-sveit. 14 1/2 v.

8. Vesturbæjarskóli A-sveit. 14 1/2 v.

9. Engjaskóli B-sveit. Stúlkur. 14 v. + 3 í aukakeppni.

10. Rimaskóli D-sveit. Stúlkur. 14 v. + 1 í aukakeppni.

11. Engjaskóli A-sveit. 14 v.

12. Laugalækjarskóli C-sveit. 13 1/2 v.

13. Engjaskóli D-sveit. Stúlkur. 13 v.

14. Rimaskóli C-sveit. 12 1/2 v.

15. Engjaskóli C-sveit. 12 1/2 v.

16. Vesturbæjarskóli B-sveit. 8 v.

17. Vesturbæjarskóli C-sveit. 5 1/2 v.

18. Vesturbæjarskóli D-sveit. 1/2 v.

 

Í sigurliði Laugarlækjarskóla A-sveit eru:

1. Örn Leó Jóhannsson

2. Emil Sigurðarson

3. Eyjólfur Emil Jóhannsson

4. Einar Ólafsson

 

Í silfurliði Rimaskóla A-sveit eru:

1. Jón Trausti Harðarson

2. Hrund Hauksdóttir

3. Oliver Aron Jóhannesson

4. Dagur Ragnarsson

 

Í bronsliði Hólabrekkuskóla eru:

1. Dagur Kjartansson

2. Brynjar Steingrímsson

3. Friðrik Daði Smárason

4. Donika Kolica

Varam. Heimir Páll Ragnarsson

 

Keppnin um Reykjavíkurmeistara stúlknasveita.

 

Í sigurliði Engjaskóla B-sveit – stúlkur eru:

1. Elin W. Viggósdóttir

2. Honey Grace Bergamento

3. Aldís Birta Gautadóttir

4. Eva Valdís Hákonardóttir

 

Í silfurliði Rimaskóla D-sveit -stúlkur eru:

1. Svandís Rós Ríkharðsdóttir

2. Nancy Davíðsdóttir

3. Heiðrún Anna Hauksdóttir

4. Tinna Aðalsteinsdóttir

1. varam. Kristín Lísa Friðriksdóttir

2. varam. Ásdís Þórarinsdóttir

 

Í bronsliði Engjaskóla D-sveit-stúlkur eru:

1. Unnur Ósk Burknad

2. Rósa L. Robertid

3. Ásdís Eik Aðalsteinsdóttir

4. Ásdís María Gunnarsdóttir

 

Skákstjórn önnuðust Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Mótsstjóri er Soffía Pálsdóttir, ÍTR.