Laugardagsæfingin 14. mars



Skákæfingin síðasta laugardag var með hefðbundnu sniði. Tefldar voru 5 umferðir með 7. mínútna umhugsunartíma og Sævar Bjarnason var með skákskýringar á stóra skáksýningarborðinu. Fjórir drengir mættu á sína fyrstu skákæfingu og þeir ýmist tóku þátt í æfingamótinu eða fylgdust með og fengu einkakennslustund hjá Sævari við skákborðið hluta af tímanum. Krakkarnir sem eru orðin dálítið “sjóuð” í notkun skákklukknanna voru dugleg að hjálpa nýliðunum með klukkurnar og líka með að minna á skákreglurnar og fylla út monradspjöldin.

 

Vert er að minna á að við höldum áfram með laugardagsæfingarnar út allan aprílmánuð og stefnum á að hafa “uppskeruhátíð” eða lokaæfingu vetrarins laugardaginn 2. maí, en við auglýsum hana sérstaklega síðar. Þannig að skákæfingarnar HALDA ÁFRAM í páskafríi grunnakólanna!

 

En nú að laugardagsæfingunni. Úrslit urðu sem hér segir:

1. Jakob Alexander Petersen 5 v. af 5.

2.-3. Þorsteinn Freygarðsson, Smári Arnarson 4 v.

4. -6. Gauti Páll Jónsson, Ólafur Örn Olafsson, Vignir Vatnar Stefánsson 3 v. 

Þau sem einnig tóku þátt og fá mætingarstig eru: Erik Daníel Jóhannesson, Sólrún Elín Freygarðsdóttir, Páll Ísak Ægisson, Gunnar Helgason, Kristján Gabríel Þórhallsson, Haukur Arnórsson, Halldóra Freygarðsdóttir, Styrmir Ólafsson, Hróðný Rún Hölludóttir, Muhammad Zaman, Axel Pálsson, Ayub Zaman. Kristján Már Einarsson kom í fyrsta skipti í dag og fylgdist með og fær hann líka 1 mætingarstig.

Eins og áður hefur verið sagt frá, fá krakkarnir stig fyrir ástundun og árangur á laugardagsæfingunum.

Stigin standa núna eftir 10 laugardagsæfingar (talið frá áramótum)

1. Gauti Páll Jónsson 21 stig

2. Þorsteinn Freygarðsson  17 stig

3. Mías Ólafarson, 14 stig

4. Jakob Alexander Petersen 13 stig

5. Einar Björgvin Sighvatsson  12 stig

6.-9. Hörður Sindri Guðmundsson, Smári Arnarson, Erik Daníel Jóhannesson, Gunnar Helgason 10 stig

10.-11.Halldóra Freygarðsdóttir, Sólrún Elín Freygarðsdóttir   9 stig

12.-13.. Figgi Truong, Páll Ísak Ægisson 8 stig

14.-17. Tjörvi Týr Gíslason, Kristófer Þór Pétursson, Sigurður Alex Pétursson, Ólafur Örn Olafsson 7 stig

18.-22. Kristján Nói Benjamínsson, Jóhann Markús Chun, Samar-e-Zahida, María Zahida, Kristján Gabríel Þórhallsson 6 stig

23. 24. Elvar P. Kjartansson, Atli Freyr Gylfason  5 stig.

25.- 30. Elmar Oliver Finnsson, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Kveldúlfur Kjartansson, Mariam Dalía Ómarsdóttir, Ísak Indriði Unnarsson, Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir 4 stig.

31.-36. Tinna Chloe Kjartansdóttir, Svavar Egilsson, María Ösp Ómarsdóttir, Vignir Vatnar Stefánsson, Muhammad Zaman, Ayub Zaman 3 stig.
37.-42. Guðmundur Óli Ólafarson, Máni Elvar Traustason, Atli Finnsson, Bragi Þór Eggertsson, Madison Jóhannesdótir, Hróðný Rún Hölludóttir 2 stig.
43.-63. Ásdís Ægisdóttir, Dagný Dögg Helgadóttir, Edda Hulda Ólafardóttir, Frosti, Jón Bjartur Þorsteinsson, Jón Eðvarð Viðarsson, Kristján Arnfinnsson, Marinó Ívarsson, Sveinn Orri Helgason, Egill Orri Árnason, Þorgrímur Erik Þ. Rodriguez, Bjarki Harðarson, Gylfi Már Harðarson, Elías Magnússson, Pétur Sæmundsson, Halldór Ísak Ólafsson, Finnbogi Tryggvason, Haukur Arnórsson, Styrmir Ólafsson, Axel Pálsson, Kristján Már Einarsson 1 stig.

Umsjónarmaður var Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

Verið velkomin næsta laugardag kl. 14-16. Húsið opnar kl. 13.45.

 

Umsjón með laugardagsæfingunum skipta þau með sér þau Elín Guðjónsdóttir, Magnús Kristinsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, sem öll eru í stjórn Taflfélags Reykjavíkur og mynda ásamt Torfa Leóssyni barna -og unglinganefnd T.R.
Veffang: https://taflfelag.is/