Alla laugardaga í vetur eru haldnar barna- og unglingaæfingar á vegum TR. Æfingarnar hefjast kl. 14 og er aðgangur ókeypis. Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason sér um kennslu og einnig fara fram mót í hvert skipti. Boðið er upp á fríar veitingar á æfingunum.
Æfingarnar hafa verið vel sóttar í vetur en alls hafa um 40 börn mætt og oft eru í kringum 20 börn á hverri æfingu. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mætta með börnum sínum og upplifa gleðina og keppnisbaráttuna sem skín úr augum barnanna.
Næsta æfing fer fram á morgun, laugardag, kl. 14-16 í húsakynnum Taflfélagsins að Faxafeni 12.
Nánari upplýsingar má sjá hér.