Kristófer Orri með fullt hús á Þriðjudagsmóti



Kristófer að tafli í KR. Myndina tók Rúnar Sigurðsson.

Kristófer að tafli í KR. Myndina tók Rúnar Sigurðsson.

Kristófer Orri Guðmundsson sigraði á Eurovision Þriðjudagsmótinu mikla, sama kvöld og Ísland tók þátt í þeirri skemmtilegu keppni. Vefstjóri vonar að þeim hafi gengið vel! Næstur á eftir Kristófer varð Adam Omarsson með fjóra vinninga, og hlutu fjórir keppendur þrjá vinninga. Árangursverðlaunin hlaut Gabriel Cumayas. 11 skákmenn mættu til leiks, en eins og vanalega má sjá öll úrlsit og stöðu á chess-results.

Næsta Þriðjudagsmót verður 17. maí, klukkan 19:30 stundvíslega í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Að venju fimm umferðir; 10 mín. á skák að viðbættum 5 sek. fyrir hvern leik. Frá og með næstu mánaðarmótum verða Þriðjudagsmót síðan annan hvern þriðjudag; sjá dagskrá Þriðjudagsmóta hér.