Kristján og Björn Freyr efstir á Vetrarmóti öðlinga



Kristján Guðmundsson (2277) og Björn Freyr Björnsson (2164) eru efstir með 5 vinninga að lokinni 6. og næstsíðustu umferð Vetrarmóts öðlinga sem fram fór í kvöld.  Kristján vann Hrafn Loftsson (2210) en Björn Freyr sigraði Halldór Grétar Einarsson (2236).  Fjórir keppendur hafa 4½ vinning. 

Það eru auk Halldórs Grétars, þeir Benedikt Jónason (2237), Þorsteinn Þorsteinsson (2237) og Halldór Pálsson (1974).

Kristján og Björn Freyr mætast í lokaumferðinni og hafa því 6 keppendur möguleika á að sigra á mótinu

Ein skák er frestuð og pörun lokaumferðar því ekki komin.