Nýverið fóru fram Skólaskákmót Reykjavíkur sem og Landsmótið í skólaskák og að venju létu liðsmenn Taflfélags Reykjavíkur ekki sitt eftir liggja. Skólamótin eru mikilvæg fyrir börnin og skákmenn sem komnir eru á fullorðins ár eiga gjarnan góðar minningar frá þeim.
Skólaskákmót Reykjavíkur var haldið í Laugalækjarskóla 29. apríl og var mótahald í höndum Skáksambands Íslands ásamt Skákakademíunni. Það er til marks um hið öfluga barna- og unglingastarf hjá Taflfélagi Reykjavíkur að í yngri flokki sigraði Mykhaylo Kravchuk og Þorsteinn Magnússon varð annar. Þá varð Gauti Páll Jónsson annar í eldri flokki, Donika Kolica þriðja og Leifur Þorsteinsson fjórði. Sannarlega glæsileg frammistaða og vart þarf að taka fram að öll eru þau í afrekshópi TR.
- Skólaskákmót Reykjavíkur – yngri flokkur
- Skólaskákmót Reykjavíkur – eldri flokkur
Sex TR krakkar voru síðan meðal þátttakenda í Landsmótinu í skólaskák sem fór fram á Patreksfirði um síðastliðna helgi en það ver Skáksamband Íslands sem sá um mótahald. Þrír TR-ingar tefldu í yngri flokki þar sem hinn ungi og efnilegi Bárður Örn Birkisson varð annar, Mykhaylo fimmti og Þorsteinn sjötti af tólf keppendum. Í eldri flokki varð Gauti Páll fjórði, Leifur sjötti og Donika sjöunda af keppendunum tólf.
- Landsmótið í skólaskák – yngri flokkur
- Landsmótið í skólaskák – eldri flokkur
Hér var aðeins stiklað á stóru og farið yfir þátttöku barnanna í nýliðnum mótum en flest þeirra eru að auki komin með ágæta reynslu í kappskákmótum sem og hraðskákmótum og þá eiga þau mikið hrós skilið fyrir öfluga ástundun á Laugardagsæfingunum. Haldi þau áfram á sömu braut er ljóst að nöfn þeirra eiga eftir að sjást reglulega í skákmótum framtíðarinnar og að staða þeirra í töflunni færist ofar og ofar.
Taflfélag Reykjavíkur er sannarlega stolt af því að eiga svo glæsilega fulltrúa og hlakkar til að vinna áfram með þeim á næstkomandi starfsári.