Jón Viktor Gunnarsson sigraði á Borgarskákmótinu



Borgarskakm_2015-11

Jón Viktor Gunnarsson sigurvegari Borgarskákmótsins 2015

Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson sem tefldi fyrir Malbikunarstöðina Höfða sigraði á 28. Borgarskákmótinu sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.  Hann sigraði alla andstæðinga sína og kom í mark með 7 vinninga.  Jón Viktor sigraði einnig á mótinu í fyrra.

Formaður borgarráðs og staðgengill Borgarstjóra Sigurður Björn Blöndal setti mótið, og hafði á orði að síðasta skák sem hann hefði teflt við hefði verið gegn Róbert Lagerman á Grænlandi fyrir nokkrum árum.  Nefndi hann einnig í ræðu sinni að það væri gaman að sjá hve skákin héldi vel velli, væri í sókn og hve breiður hópur skákmanna væri mættur í Ráðhúsið.  Að því loknu lék hann fyrsta leiknum í skák Jóns Viktors og Sigurðar Ingasonar.

Borgarskakm_2015-34

Páll G. Jónsson lét sig ekki vanta.

Borgarskakm_2015-36

Adam Omarsson að tafli

Mótið í ár var ágætlega mannað en alls tóku 63 keppendur þátt að þessu sinni.  Yfir sjötíu ára aldursmunur var á yngsta og elsta keppenda mótsins þeim Adam Ómarssyni (8) og Páli G. Jónssyni (82) og stóðu báðir sig með með prýði.

Fyrirfram máttti búast við harðri keppni titilhafanna á mótinu um sigurinn og sú varð raunin.  Fide meistarinn Davíð Kjartansson sem tefldi fyrir Olís kom annar í mark á eftir Jón Viktor með sex vinninga og tapaði einungis innbyrðisviðureign þeirra.  Þriðji varð svo annar Fide meistari, fyrrnefndur Róbert Lagerman (Faxaflóahafnir) með 5 1/2 vinning.

Borgarskakm_2015-13

Forsetinn Gunnar Björnsson einbeittur að tafli

Ungu skákmennirnir settu sterkan svip á mótið og fóru mikinn. Örn Leó Jóhannsson (Efling stéttarfélag) og Jón Trausti Harðarson (Grillhúsið) hlutu báðir 5 vinninga og enduðu í 4.-13. sæti.  Tvíburabræðurnir ungu Björn og Bárður Birkissynir sem tefldu fyrir Byko og Hamborgarbúllu Tómasar vöktu athygli og lögðu að velli marga reynda meistara.  Má þar nefna Forseta skáksambandsins Gunnar Björnsson sem þurfti að játa sig sigraðann gegn þeim báðum, Stefán Bergsson og gamla brýnið Gunnar Gunnarsson sem þurftu að lúta í gras gegn Bárði og alþjóðlegi skákdómarinn Omar Salama sem fann engar löglegar leiðir til að verjast Birni.  Þá stóð Óskar Víkingur Davíðsson (10) sig mjög vel og kom í mark með 4 1/2 vinning eftir góðan endasprett.

Borgarskakm_2015-61

Veronika Magnúsdóttir hefur rokið upp stigalistann að undanförnu.

Af stúlkunum stóð Lenka sig best (4v), Guðlaug (3 1/2), Veroníka (3) og Freyja Birkisdóttir sem einungis er níu ára hlaut 2 vinninga.

Borgarskakm_2015-41

Óskar Long (t.v.) og Einar S. Einarsson sjá sér leik á borði á sama andartaki.

Skák og lífskúnsterinn Einar S. Einarsson átti trúlega stystu skák mótsins þegar að hann kæfingarmátaði Guðlaugu Þorsteinsdóttir með þekktu stefi úr Búdapestarvörninni í einungis 7 leikjum.

Borgarskakm_2015-53

Áhorfendur fylgjast spenntir með 28. Borgarskákmótinu.

Borgarskakm_2015-40

Endurnar skoðaðar

Töluverður fjöldi áhorfenda var á mótinu, þá einkannlega túristar sem staddir voru í Ráðhúsinu og fylgdust spenntir með af pallinum.  Aðrir höfðu minni áhuga á taflmennskunni en þeim mun meiri á öndunum á tjörninni.  Þeirra á meðal sonur Omars og Lenku sem grandskoðaði fuglalífið á meðan á móti stóð.

Taflfélag Reykjavíkur vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku þátt, Borgarinnar fyrir að hýsa mótið, Skákfélaginu Hugin fyrir samstarfið og síðast en ekki síst þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu mótið.  Sjáumst að ári!

 

 

 

 

 

Heildarúrslit:

Urslit

Sjáið myndirnar frá fjörinu: