Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 27. desember kl. 14. Tefldar verða 2×7 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma. Mótið fer fram í húsnæði T.R. að Faxafeni 12. Þátttökugjald er kr. 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Þar sem úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram á sama tíma í beinni útsendingu Sjónvarpsins verður boðið upp á aðstöðu til að fygjast með því.