Jóhann og Guðmundur efstir í leikhléi á Haustmótinu



Jóhann H. Ragnarsson (2068) og Guðmundur Kjartansson (2314) eru efstir með 4 vinninga í a-flokki Haustmóts TR en fimmta umferð fór fram í kvöld.  Jóhann vann Tómas Björnsson (2162) í vel útfærðri sóknarskák og Guðmundur lagði Stefán Bergsson (2135).   Davíð Kjartansson(2291) er þriðji með 3½ vinning.  Nú verður vikuhlé á mótinu vegna Íslandsmóts skákfélaga.  

Sjötta umferð fer fram á miðvikudaginn, 12. október og hefst kl. 19:30. 

A-flokkur:

Úrslit 5. umferðar:

 

1 Kjartansson David  1 – 0 Bergsson Stefan 
2 Olafsson Thorvardur  1 – 0 Baldursson Haraldur 
3 Valtysson Thor  0 – 1 Kjartansson Gudmundur 
4 Jonsson Bjorn  0 – 1 Bjornsson Sverrir Orn 
5 Ragnarsson Johann  1 – 0 Bjornsson Tomas 

Staðan:

 

Rk.   Name RtgI RtgN Club/City Pts. 
1   Ragnarsson Johann  2068 2057 TG 4
2 IM Kjartansson Gudmundur  2314 2316 TR 4
3 FM Kjartansson David  2291 2266 Víkingaklúbburinn 3,5
4   Bjornsson Sverrir Orn  2158 2141 Haukar 3
5 FM Bjornsson Tomas  2162 2147 Goðinn 2,5
6   Olafsson Thorvardur  2174 2181 Haukar 2,5
7   Bergsson Stefan  2135 2135 SA 2
8   Jonsson Bjorn  2045 1962 TR 1,5
9   Valtysson Thor  2041 2025 SA 1,5
10   Baldursson Haraldur  2010 1950 Víkingaklúbburinn 0,5

 

Aðrir flokkar: 

Dagur Ragnarsson (1761) er efstur í b-flokki með 4½ vinning.  Stephen Jablon (1965) er annar með 3½ vinning.  Kristján Örn Elíasson (1906) og Mikael Jóhann Karlsson eru í 3.-4. sæti með 3 vinninga. 

Oliver Aron Jóhannesson (1645) er efstur í c-flokki með 4½ vinning. Birkir Karl Sigurðsson (1597) er annar með 4 vinninga.  Friðgeir Hólm (1667), Þorsteinn Leifsson (1772) og Jón Trausti Harðarson (1660) eru í 3.-5. sæti með 3 vinninga. 

Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er efstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús.  Jóhann Arnar Finnsson (1199) og Nansý Davíðsdóttir (1309) eru í 2.-3. sæti með 4 vinninga.