Ingvar Wu Skarphéðinsson hefur átt góða spretti við skákborðið undanfarið. Ingvar er þrettán ára og æfir hjá TR og tekur einnig virkan þátt í öllu mótahaldi.
Ingvar vann Meistaramót Skákskóla Ísland í U2000 flokki helgina 20.-22. maí. Ingvar hlaut 5.5 vinnig af 6.
Umfjöllun um Meistaramót Skákskólans.
Ingvar varð einn Landsmótsmeistari í eldri flokki helgina 27.-29. maí. Þar hlaut hann 7.5 vinning af 9 mögulegum.
Auk þess hækkaði Ingvar um 114 elo stig á síðasta lista, um mánaðamótin. Hann er því kominn með 1875 stig.
Stjórn TR óskar Ingvari Wu innilega til hamingju með árangurinn, vinnusemi og áhugi skila alltaf árangri!
 Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
				