Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 21.október kl. 14:00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss Perfect kerfi og er umhugsunartími 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri. Þrenn verðlaun verða i boði.
Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Tölvuteksmótið 2012 – Haustmót T.R.
Núverandi Hraðskákmeistari T.R. er Halldór Pálsson.