Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 7. febrúar



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 7. febrúar og hefst taflið kl.13:00.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum.

Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað og lýkur henni kl.12:50. Keppendur er vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega.

Eftir hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Verði keppendur jafnir að vinningum verður skorið úr um sætaröð með stigaútreikningi (tie-break). Röð stigaútreiknings: 1.Bucholz (-1), 2.Bucholz (median), 3. Innbyrðis úrslit, 4.Sonneborn-Berger.

Ríkjandi hraðskákmeistari Reykjavíkur er Helgi Áss Grétarsson.

2020: Helgi Áss Grétarsson 2019: Guðmundur Kjartansson 2018: Helgi Áss Grétarsson 2017: Dagur Ragnarsson 2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíð Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíð Kjartansson 2007: Davíð Kjartansson.