Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 9. febrúar kl. 14.
Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Þrenn verðlaun í boði.
Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur 2014.
Núverandi hraðskákmeistari er Oliver Aron Jóhannesson.