Vignir Vatnar Stefánsson gerði í dag jafntefli við stigalausan heimamann í tíundu og næstsíðustu umferð Heimsmeistaramóts ungmenna sem fer fram í Durban, S-Afríku. Í níundu umferð tapaði Vignir gegn Hvít-Rússa með 1762 Elo-stig. Vignir er fyrir lokaumferðina, sem hefst kl. 8 í fyrramálið, í 42.-60. sæti með 5 vinninga. Á morgun hefur Vignir hvítt gegn skákmanni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum en sá hefur 1624 Elo-stig.
Efstur með 8 vinninga er Bandaríkjamaðurinn David T. Peng en hann var númer 21 í stigaröð keppenda við upphaf móts. Sex keppendur koma næstir með 7,5 vinning og fimm fylgja í kjölfarið með 7 vinninga.
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar(mótssíða)
- Beinar útsendingar (Chessdom)