Hannes Hlífar Stefánsson, Taflfélagi Reykjavíkur, varð í gær Íslandsmeistari í skák í tíunda sinn á ellefu árum. Aðeins árið 2000 sigraði Hannes ekki en þá var hann ekki meðal þátttakenda í Íslandsmótinu.
Sigurinn í ár var öruggur hjá Hannesi og var hann 1,5 vinningi á undan næsta manni, stórmeistaranum Henrik Danielsen.