Guðmundur Kjartansson (2314) sigraði á Haustmóti TR sem lauk í kvöld. Guðmundur gerði jafntefli við Sverri Örn Björnsson (2158) í lokaumferðinni og hlaut 7,5 vinning í 9 skákum. Davíð Kjartansson (2291), sem vann Jóhann H. Ragnarsson (2068) varð annar með 7 vinninga og Stefán Bergsson (2135), sem vann Þór Valtýsson (2041) varð þriðji með 5,5 vinning. Mikael Jóhann Karlsson (1855) sigraði í b-flokki, Oliver Aron Jóhannesson (1645) í c-flokki og Vignir Vatnar Stefánsson (1444) í d-flokki.
A-flokkur:
Úrslit 9. umferðar:
1 | Valtysson Thor | 0 – 1 | Bergsson Stefan |
2 | Jonsson Bjorn | ½ – ½ | Olafsson Thorvardur |
3 | Ragnarsson Johann | 0 – 1 | Kjartansson David |
4 | Bjornsson Tomas | ½ – ½ | Baldursson Haraldur |
5 | Bjornsson Sverrir Orn | ½ – ½ | Kjartansson Gudmundur |
Lokastaðan:
Rk. | Name | RtgI | Club/City | Pts. | Rp | rtg+/- | |
1 | IM | Kjartansson Gudmundur | 2314 | TR | 7,5 | 2393 | 8,1 |
2 | FM | Kjartansson David | 2291 | Víkingar | 7 | 2343 | 8,6 |
3 | Bergsson Stefan | 2135 | SA | 5,5 | 2220 | 15,8 | |
4 | Bjornsson Sverrir Orn | 2158 | Haukar | 5 | 2181 | 3,9 | |
5 | Ragnarsson Johann | 2068 | TG | 5 | 2191 | 21,3 | |
6 | FM | Bjornsson Tomas | 2162 | Goðinn | 4 | 2094 | -12,1 |
7 | Olafsson Thorvardur | 2174 | Haukar | 4 | 2093 | -14,3 | |
8 | Jonsson Bjorn | 2045 | TR | 3 | 2025 | -4,3 | |
9 | Valtysson Thor | 2041 | SA | 2 | 1931 | -18,3 | |
10 | Baldursson Haraldur | 2010 | Víkingar | 2 | 1934 | -12,6 |
Aðrir flokkar:
Mikael Jóhann Karlsson (1855) sigraði í b-flokki en hann hlaut 6,5 vinning. Mikael ávinnur sér þar með keppnisrétt í a-flokki að ári. Dagur Ragnarsson (1761) varð annar með 6 vinninga og Stephan Jablon (1965) þriðji með 5,5 vinning.
Oliver Aron Jóhannesson (1645) sigraði í c-flokki en hann hlaut 7 vinninga. Oliver ávinnur sér þar með keppnisrétt í b-flokki að ári. Birkir Karl Sigurðsson (1597) varð annar með 6,5 vinning. Jón Trausti Harðarson (1660) og Friðgeir Hólm (1667) urðu í 3.-4. sæti með 6 vinninga.
Vignir Vatnar Stefánsson (1444) sigraði í d-flokki (opnum flokki) en hann hlaut 7,5 vinning. Vignir þar með ávinnur sér keppnisrétt í c-flokki að ári. Jóhann Arnar Finnsson (1199) varð annar með 7 vinninga. Sóley Lind Pálsdóttir (1345), Rafnar Friðriksson (1407) og Hilmir Freyr Heimisson (1322) urðu í 3.-5. sæti með 6 vinninga.