Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) gerði jafntefli í gær við franska Fide meistarann Julien Lamorelle (2311) í sjöttu umferð alþjóðlegs móts í Barcelona. Guðmundur er í 36.-77. sæti með 4 vinninga. Stórmeistararnir Eduardo Iturrizaga og Vladimir Burmakin eru efstir og jafnir með 5,5 vinning en þrettán keppendur koma næstir með 5 vinninga. Sjöunda umferð hefst í dag kl. 14.30 og þá hefur Guðmundur hvítt gegn heimamanni, Fide meistaranum Jordi Ayza Ballester (2226).
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results